Skráning er hafin í valgreinar fyrir skólaárið 2021-2022.
Smellið hér > Valgreinar 2021-22 til að lesa bæklinginn um valgreinarnar.
Smellið hér >Valgreinar 2021-22-valblad til að sækja nemendavalblað fyrir valgreinarnar. - Nemendur í 9. og 10.bekk.
Smellið hér > Valgrein_Tæknskólaval_2021-2022 til að sækja nemendavalblað fyrir verk- og listgreinaval Tækniskólans. - Nemendur í 10. bekk.
Nám í 9.-10. bekk skiptist í kjarnagreinar og valgreinar. Valgreinar eru hluti af skyldunámi í grunnskóla. Val nemenda hefur áhrif á skipulag skólastarfsins, því getur verið erfitt að breyta valgreinum eftir að skóli hefst að hausti. Vegna fjöldatakmarkana er ekki hægt að ábyrgjast að nemendur fái allar valgreinar sem þeir hafa óskað eftir. Nemendur eru með 30 stundir á viku í kjarnafögum og 6 stundir á viku í valgreinum að meðaltali yfir veturinn..
Mikilvægt er að vanda valið og forgangsraða þeim greinum sem óskað er eftir þannig að það sem nemendur hafa mestan áhuga á verði Val 1, næst Val 2 og svo framvegis. Númerið þannig námsgreinar upp í Val 6.
Eftir að valblaði hefur verið skilað inn er ekki hægt að breyta vali.