Skip to content

Bætt umferðaröryggi – rafhlaupahjól og létt bifhjól í flokki I

Vinsældir rafhlaupahjóla og léttra bifhjóla í flokki I (vespa) hafa aukist að undanförnu hér á landi enda frábær farartæki séu þau notuð rétt. Samgöngustofa hefur nú tekið saman upplýsingar um notkun þeirra og öryggi. Við hvetjum foreldra til að ræða við börnin sín, sýna fræðslumyndirnar, fara yfir fræðsluefnið og taka þetta til umræðu.

Vélknúin hlaupahjól (oft kölluð rafhlaupahjól, rafmagnshlaupahjól, rafskútur) tilheyra flokki reiðhjóla og eru hönnuð til aksturs á hraða frá 6 km á klst. upp í 25 km á klst., sjá skilgreiningu í c-lið 30. tölul. 1. mgr. 3 gr. umferðarlaga.

Í umferðarlögum kemur fram að slíkum farartækjum megi þó ekki aka á akbraut en þau lúta að öðru leyti sömu reglum og reiðhjól t.d. hvað varðar öryggisbúnað og mikilvæg atriði sem vert er að hafa í huga þegar hjólað er á gangstígum.

Samkvæmt umferðarlögum er ekkert aldurstakmark á vélknúin hlaupahjól en ávallt skal fara eftir þeim viðmiðum og leiðbeiningum sem framleiðandi hjólsins leggur til. Auk þess eru rafhlaupahjólaleigur yfirleitt með aldurstakmark á notkun hjólanna.

Athugið sérstaklega að börn og ungmenni undir 16 ára aldri eiga skv. lögum alltaf að nota hjálm við hjólreiðar en mælt er með að allir noti hjálm á rafhlaupahjóli öryggisins vegna.

Frekar upplýsingar er að finna á heimasíðu Samgöngustofu

www.samgongustofa.is/rafhlaupahjol