Röskun á skólastarfi þriðjudaginn 10. desember
Ef veðurspá gengur eftir mun kennslu í Breiðholtsskóla ljúka 13:40 og eru foreldrar beðnir um að sækja nemendur í 1. – 4. bekk þá.
Starfsfólk Breiðholtsskóla munu fylgjast vel með tilkynningum og veðri í dag og hvetjum við foreldra og forráðamenn að gera slíkt hið sama.
____________________________________________________________________________________
Skóla- og frístundastarf mun raskast frá hádegi í dag, þriðjudaginn 10. desember vegna óveðurs sem spáð er að gangi yfir höfuðborgarsvæðið. Enginn ætti að vera á ferli eftir klukkan 15 í dag nema brýn nauðsyn beri til.
Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun vegna óveðursins sem spáð er. Foreldrar og forráðamenn barna eru beðnir um að sækja börn sín strax að skóladegi loknum til að tryggt sé að allir, börn, foreldar og starfsfólk geti náð heim til sín áður en veðrið skellur á. Foreldrar leikskólabarna sæki börn sín fyrir kl. 15.
Allt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf í Reykjavík fellur niður svo og starf skólahljómsveita. Eldri grunnskólanemendur fara því beint heim eftir skóladag og eru foreldrar beðnir um að sjá til þess að þeir séu ekki á ferli þegar og eftir að veðrið skellur á.
Akstursþjónusta fatlaðra mun aka heim þeim skólabörnum sem þeirrar þjónustu njóta, strax að loknum skóladegi.
Þá munu sundlaugar, útibú Borgarbókasafnsins og söfn á vegum Reykjavíkurborgar verða lokuð eftir kl. 14 á morgun.
Fólk er beðið um að huga að lausamunum sem geta fokið og minnir Sorphirða Reykjavíkur íbúa sérstaklega á að huga vel að sorpílátum sínum og tryggja að þau fjúki ekki.
Lokanir skóla og stofnana eru tilkomnar vegna öryggisráðstafana en enginn ætti að vera á ferli í veðri eins og spáð er. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðri í fjölmiðlum og fylgja tilmælum yfirvalda.
Appelsínugul viðvörun þýðir að það séu miðlungs eða miklar líkur á veðri sem geti valdið miklum samfélagslegum áhrifum, tjóni eða slysum og hugsanlega ógnað lífi og limum ef aðgát er ekki höfð.